04.11.1980
Neðri deild: 10. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 447 í B-deild Alþingistíðinda. (313)

17. mál, olíugjald til fiskiskipa

Garðar Sigurðsson:

Herra forseti. Ég hef gagnrýnt síbreytingu á olíugjaldinu og ég hef bent á galla á fyrirkomulagi gjaldsins, en meðan ekki hefur annað komið í staðinn stend ég að samþykkt frv. Ég segi já.