04.11.1980
Neðri deild: 10. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 447 í B-deild Alþingistíðinda. (314)
17. mál, olíugjald til fiskiskipa
Guðmundur J. Guðmundsson:
Herra forseti. Þetta mál, sem hér er greitt atkv. um, er slæmt mál. Það er óhæfa að hringla jafntækifærissinnað með olíugjald og verið hefur og síst á kostnað sjómanna. Ég áskil mér allan rétt að styðja eða flytja till. siðar er lúta að breytingu á formi olíugjalds eða aukningu skattafrádráttar sjómanna. En úr því sem komið er og mál standa sé ég mér ekki annað fært en að styðja frv. að þessu sinni og segi já.