23.03.1981
Efri deild: 66. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3005 í B-deild Alþingistíðinda. (3151)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Helgi Seljan):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 23. mars 1981.

Samkvæmt beiðni Eyjólfs Konráðs Jónssonar, 5. landsk. þm., sem farinn er til útlanda í opinberum erindagjörðum, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður hans, frú Sigurlaug Bjarnadóttir menntaskólakennari, taki á meðan sæti hans á Alþingi.

Virðingarfyllst,

Þorv. Garðar Kristjánsson.“

Sigurlaug Bjarnadóttir hefur áður tekið hér sæti á þessu kjörtímabili og þarf því ekki að fara fram rannsókn á kjörbréfi hennar. Býð ég hana velkomna til starfa.