24.03.1981
Sameinað þing: 64. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3062 í B-deild Alþingistíðinda. (3192)

377. mál, greiðslufrestur á tollum

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég hef haft afskipti af þessu máli frá því 1962, ekki bara frá 1976 eða 1975. Síðan 1962 hefur þetta verið mitt áhugamál. Ég hef talað við fjmrh. ég held allra ríkisstjórna, sem setið hafa síðan, um þetta mál, og ég vil staðfesta það, sem kom hér fram hjá fjmrh., að eftir einn fund með honum setti hann á laggirnar nefnd sem er starfandi núna, og með hans leyfi bar ég Verslunarráðinu þau boð, að Verslunarráðið skipaði einn af þremur í þá nefnd og er lögfræðingur Verslunarráðsins starfandi í nefndinni.