24.03.1981
Sameinað þing: 64. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3062 í B-deild Alþingistíðinda. (3194)
377. mál, greiðslufrestur á tollum
Matthías Á. Mathiesen:
Herra forseti. Það mátti heyra það af orðum hv. 11. þm. Reykv., að hann var ekki vel að sér í sögu þessa máls. Sú nefnd, sem ég skipaði, var skipuð í upphafi árs 1977 til þess að kanna þetta mál og koma fram með grg. í málinu. Þetta mál vannst ekki fyrr en svo að nefndin skilaði áliti í ágústmánuði 1978. Nefndarálitið var ekki komið fram fyrir kosningar sem þá fóru fram. Það kom fram í ágúst 1978, skömmu áður en sú ríkisstj. fór frá sem hafði beitt sér fyrir málinu. Það höfðu ekki aðrir gert áður, ekki heldur sú ríkisstj. sem sat hér á árunum 1971–1974, svo að ég bendi á þá sem þessi hv. þm. treystir kannske betur til að fara með málefni ríkisins heldur en þeim sem sátu í ríkisstj. 1974–1978, því að Alþb. átti fulltrúa í ríkisstj. 1971–1974.