26.03.1981
Sameinað þing: 66. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3106 í B-deild Alþingistíðinda. (3240)

Umræður utan dagskrár

Jón Baldvin Hannibalsson:

Herra forseti. Ég tel að með þeim upplýsingum, sem hæstv. utanrrh. hefur nú kynnt fyrir Alþingi, sé fullnægt þeim tilgangi sem var með mínum málflutningi hér, sem er að fá staðfest að þær upplýsingar, sem við þekkjum bestar, hafi verið réttar í þessu máli. Þar með hafa ásakanir í garð fyrrv. utanrrh. verið kveðnar niður og staða málsins nú gerð lýðum ljós.