01.04.1981
Efri deild: 70. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3264 í B-deild Alþingistíðinda. (3378)

258. mál, ný orkuver

Forseti (Helgi Seljan):

Ég vil geta þess, að við munum ekki halda hér kvöldfund og ekki mjög langt fram yfir kl. 7 — án þess að ég sé að nokkru að brýna það fyrir næsta hv. ræðumanni að hann tali stutt. Við munum reyna að ljúka þessum fundi upp úr 7, ekki miklu seinna en kl. 7. Það er okkar háttur hér, og umr. verður frestað ef fleiri verða þá eftir.