02.04.1981
Sameinað þing: 69. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3373 í B-deild Alþingistíðinda. (3453)

49. mál, varnir vegna hættu af snjóflóðum og skriðuföllum

Frsm. (Egill Jónsson):

Herra forseti. Svo sem fram kemur í grg. fyrir þessari þáltill, var samþykkt þáltill. 14. maí 1975 um skipun nefndar til að fjalla um rannsóknir á hættu af snjóflóðum. Álit þeirrar nefndar lá fyrir ári síðar. Á grundvelli þessa m. a. hafa verið fluttar tvívegis till. til þál. sem hafa hnigið í sömu átt og þessi, það er að sett yrðu lög um varnir og viðbrögð gegn snjóflóðahættu.

Nefndin hefur fjallað um þessa till. og leggur til að hún verði samþykkt í meginatriðum eins og till. er lögð fram. Þó eru gerðar breytingar á 1. lið till., eins og fram kemur á því nál. sem n. leggur fram.