07.04.1981
Efri deild: 73. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3482 í B-deild Alþingistíðinda. (3542)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Helgi Seljan):

Út af orðum hv. þm. vil ég upplýsa það, að formaður fjh.- og viðskn. kom til mín og óskaði eftir frestun á þessu máli og ég óskaði þá um leið eftir því við hv. formann fjh.- og viðskn., að hann hefði um þá málsmeðferð, frestun þessa máls, samband við fulltrúa stjórnarandstöðunnar. Ég vona að hann hafi gert það. Aðra skýringu hef ég ekki á málinu.