09.04.1981
Sameinað þing: 72. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3582 í B-deild Alþingistíðinda. (3638)
248. mál, aðstoð ríkisins við Siglósíld
Garðar Sigurðsson:
Herra forseti. Það kom fram í máli hæstv. fjmrh. áðan að þessi verksmiðja á Siglufirði hafi eitthvert árið fengið 150 millj. kr. fjárveitingu frá ríkinu, ef ég hef tekið rétt eftir. Nú væri forvitnilegt að vita hversu mikið þetta fyrirtæki greiddi sama ár í laun eða hversu mikið þetta fyrirtæki greiddi sama ár í hráefniskostnað til þess að við höfum þetta í einhverju skynsamlegu samhengi og vitum um hvaða stærðir er verið að tala.