13.04.1981
Neðri deild: 79. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3676 í B-deild Alþingistíðinda. (3750)
217. mál, lánsfjárlög 1981
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Ég er fús til samkomulags við hæstv. forseta um að hægt verði að stilla umr. í hóf svo að menn geti gengið að snæðingi. En ég fæ ekki betur séð en hér séu dúkuð borð fyrir ákveðinn hóp þm. sem þegar sé sestur að snæðingi, svo að vitnað sé í fleyg orð hæstv. utanrrh. Ólafs Jóhannessonar, sem voru raunar mælt um aðra þm. en dúkuð eru borðin fyrir hér í dag, svo að mér finnst a. m. k. þeim ekkert liggja óskaplega mikið á að komast að öðrum snæðingi en þeim sem hér á að fara fram.
Það var þörf ábending hjá hv. þm. Halldóri Blöndal, að í öllum þessum umr., sem hér hafa farið fram, hafa menn alveg gleymt sjálfstæðismönnunum sem eiga aðild að ríkisstj. Þeir hafa algerlega gleymst. En menn mega ekki gleyma því heldur, að í umr. eins og þessum og í afskiptum mála eins og hér er í á ferðinni greiða þeir hæstv. ráðh. ekki atkvæði varðandi efnisatriði málsins eða með hliðsjón af því, heldur greiða þeir atkvæði þá með eða móti eigin ráðherrastólum. Menn verða þá að virða þeim til vorkunnar þó svo þeir gangi í hverju málinu á fætur öðru gegn yfirlýstri stefnu sinni því að hæstv. ráðherrar kjósa þá ekki um málin, heldur stólana sem þeir sitja í.
Annars held ég, herra forseti, að það hafi verið að bera í bakkafullan lækinn sú ræða sem hv. þm. Jóhann Einvarðsson flutti hér áðan. Hún var ekki honum né flokki hans til mikils sóma, a. m. k hef ég ekki áður í þessum umr. heyrt framsóknarmenn bera fyrrv. formanni Framsfl., hæstv. utanrrh., það á brýn að afstaða hans til tillagna um flugstöð á Keflavíkurflugvelli, sem fram hafa komið hér í deildum þingsins, mótist af sýndarmennsku. Hv. þm. Jóhann Einvarðsson er fyrsti þm. Framsfl. sem tekur svo mikið upp í sig að segja að till., sem byggist á sömu hugmynd og till. sem greidd voru atkvæði um í Ed. og hæstv. utanrrh. greiddi atkvæði sitt, sé sýndarmennskutillaga. Svo langt hafa jafnvel ekki Alþb.-menn gengið í þessum umr. að ásaka hæstv. utanrrh. um sýndarmennsku í þessu sambandi. Menn skulu gera sér grein fyrir að sú ásökun hittir jafnt hæstv. utanrrh. sem okkur stjórnarandstæðinga vegna þess að í þessu máli er hæstv. utanrrh. sammála okkur. Séum við ásakaðir fyrir flutning sýndarmennskutillögu, hversu alvarleg hlýtur sú ásökun þá ekki að vera á hendur hæstv. utanrrh., sem gegnir því starfi í erindum og í umboði þingflokks Framsfl.
Rökstuðningur hv. þm. Jóhanns Einvarðssonar var líka sérkennilegur. Hann hélt því m. a. fram í ræðu sinni, að það þyrfti ekki að koma í veg fyrir að útboð gæti farið fram á flugstöðinni á þessu ári þó svo að ákvörðun um fjáröflun yrði ekki tekin fyrr en í árslok, en í sömu andránni taldi hann sérstaka nauðsyn á að ákvörðun um fjárútvegun yrði tekin fyrir áramótin svo að útboð drægist ekki langt fram á næsta ár. Þessi rökstuðningur gengur náttúrlega ekki saman, eins og kom fram hjá hv. þm.
Ég get því miður ekki sagt eins og hv. þm. Geir Hallgrímsson, að ég líti svo á að yfirlýsing hv. þm. Jóhanns Einvarðssonar sé skuldbindandi fyrir Framsfl. í þessu máli. Hverjir hafa undirgengist meiri skuldbindingar en framsóknarmenn í málinu nú þegar? Það var varaformaður Framsfl. og þáv. utanrrh. flokksins sem átti allt frumkvæði að þessu máli þegar hann undirritaði samkomulagið við Bandaríkjastjórn 22. okt. 1974. Var það ekki nægileg skuldbinding fyrir Framsfl.? Það er núv. utanrrh., fyrrum formaður Framsfl., sem lýsti vilja sínum í Ed. þegar hann greiddi atkvæði till. sem hv. þm. Jóhann Einvarðsson kallar nú sýndarmennskutillögu. Var það ekki hér á árunum áður talin nægileg skuldbinding fyrir Framsfl. að slíkur maður talaði í hans nafni? Og það var hæstv. viðskrh. Tómas Árnason sem óskaði eftir því við okkur stjórnarandstæðinga um s. l. áramót, að við féllumst á að draga til baka till., sem við höfðum þá flutt um fjárveitingu á fjárlögum til flugstöðvarinnar, vegna þess að hann tók það sérstaklega fram, að Framsfl. og utanrrh. mundu undirgangast þá skuldbindingu, ef ég mætti segja svo, að láta málið ganga til afgreiðslu við afgreiðslu lánsfjáráætlunarinnar nú. Hvernig hefur verið við þá skuldbindingu staðið? Nei, hæstv. forseti, það er ósköp lítið hald í slíkum skuldbindingum sem menn hlaupa jafnharðan frá og á þær reynir.
Öll framkoma Framsfl., að hæstv. utanrrh. einum undanteknum, í þessu máli hefur verið sú að færa fram sömu rök fyrir nauðsyn framkvæmdarinnar og við tillögumennirnir höfum gert. Þeir hafa lagt áherslu á að sú framkvæmd væri í anda þeirrar sannfæringar og þeirrar stefnu sem flokkurinn hefur gefið út. En þeir hafa jafnframt sagt eins og hæstv. viðskrh. sagði um s. l. áramót þegar á reyndi: Ég ætla ekki að standa við sannfæringu mína núna, ég ætla að gera það í vor. — Síðan, þegar að því kom að hann þurfti að greiða atkvæði, hljóp hann af þingi einum degi áður en hann hafði ástæðu til til þess að sleppa við atkvgr. Svo segja menn eins og hv. þm. Jóhann Einvarðsson sagði hér áðan eftir sinn prýðilega rökstuðning: Mín sannfæring er sú, að flugstöðin skuli byggð. Ég ætla ekki að standa við sannfæringu mína núna. Ég ætla að standa við hana í haust.
Það er hins vegar nokkuð lærdómsríkt fyrir þá Alþb. menn að geta vitnað til þess, að ítrekað skuli það henda hér á Alþingi Íslendinga í málum eins og þessum, þar sem eigast við annars vegar 49 þingmenn annarra flokka en Alþb. og hins vegar 11 Alþb.-menn, að af 60 þingmönnum skuli 11 mynda meiri hluta hér á Alþingi, en 49 skoðast sem minni hl. Það skyldi nú ekki vera að það væri til þess ætlast, áður en allt of langt um líður, að hv. þm. Alþb., og þá ekki síst sá sem situr nú beint á móti mér, hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson, verði látnir borga dálítið fyrir þennan greiða - eða öllu heldur ekki þeir, heldur almenningur í þessu landi og þá einkum og sér í lagi launafólkið? Ætli ýmsir aðilar í ríkisstj., m. a. þeir sem minnst hafa nálægt þessum umr. komið, þykist ekki geta gert nokkurt tilkall til þessara 11 þm. um fórnir, ekki af þeirra hálfu, heldur af hálfu launþega í landinu, fyrir það sem Alþb.-menn hafa fengið fram við þessa afgreiðslu?