13.04.1981
Neðri deild: 79. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3678 í B-deild Alþingistíðinda. (3753)

217. mál, lánsfjárlög 1981

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég geri eftirfarandi grein fyrir atkv. mínu:

Með því að hér er um brýna þjóðnauðsynlega framkvæmd að ræða, allar áætlanir, teikningar og útboðsskilmálar eru fyrir hendi, öllum undirbúningi er lokið og frestun ákvörðunar um málið stefnir byggingu nýrrar flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli í hættu, svo að ekki verður séð fyrir hvenær sú framkvæmd verður að veruleika, segi ég já.