14.04.1981
Neðri deild: 81. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3732 í B-deild Alþingistíðinda. (3811)

220. mál, tímabundið olíugjald til fiskiskipa

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Í þessu frv. er enn einu sinni lagt til að leggja gjöld á aftur í tímann. Í þetta skipti er það miðað við síðustu áramót. Ég er afskaplega þreyttur orðinn á þessum reikningum eftir á, þessum bakreikningum þessarar hæstv. ríkisstj., og segi nei.