14.04.1981
Neðri deild: 81. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3733 í B-deild Alþingistíðinda. (3816)

217. mál, lánsfjárlög 1981

Matthías Á. Mathiesen:

Herra forseti. Það er löngu orðin venjubundin afgreiðsla á Alþingi að ákvarða lántökur ríkissjóðs með heimildarákvæðum eins og því sem hér er lagt til að samþykkt verði. Í slíku ákvæði felst vilji Alþingis sem ríkisstjórnir hingað til hafa virt. Ég segi já.