14.04.1981
Neðri deild: 81. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3734 í B-deild Alþingistíðinda. (3824)

217. mál, lánsfjárlög 1981

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Það hefur ekkert komið fram um það hjá hv. þm. að þeir hafi mismælt sig. Hér ber öllu saman um atkvgr. hjá báðum skrifurum, enda sjá menn það í hendi sér sem fylgdust með atkvgr., að þar fór ekkert á milli mála.