14.04.1981
Neðri deild: 81. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3734 í B-deild Alþingistíðinda. (3826)

217. mál, lánsfjárlög 1981

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Ef ástæða er til að endurtaka þessa atkvgr., þá held ég að það sé full ástæða til að endurtaka fleiri atkvgr. að undanförnu. Hitt vil ég síðan segja, að til er dalur inn af Blöndudal sem heitir Rugludalur. Ég hélt að þar væri ekki lengur byggð.