14.04.1981
Neðri deild: 81. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3734 í B-deild Alþingistíðinda. (3828)

217. mál, lánsfjárlög 1981

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Þessum athugasemdum er lokið og atkvgr. hefur verið lýst. Hún verður ekki endurtekin. Það er ekkert sem gefur tilefni til þess að ég fari að hlýða mönnum hér aftur yfir afstöðu þeirra. Það kemur ekki til nokkurra greina að svo búnu.