14.04.1981
Neðri deild: 81. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3735 í B-deild Alþingistíðinda. (3829)

Umræður utan dagskrár

Matthías A. Mathiesen:

Herra forseti. Ég þakka það, að ég get fengið tækifæri til þess að beina þeirri fsp. til hæstv, forsrh., hvenær vænti megi skýrslu um kaup á togara fyrir Útgerðarfélag Norður-Þingeyinga á Þórshöfn. Þessi beiðni um skýrslu var lögð fram á þskj. 434 18. febr. s. l. Þessi mál voru og hafa verið til umr. og ég vildi mega beina þessari fsp. til hæstv. forsrh. og leyfi mér að þakka svör hans fyrir fram.