30.04.1981
Neðri deild: 85. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3881 í B-deild Alþingistíðinda. (3926)
306. mál, verðlagsaðhald
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Ég vil fyrir hönd þingflokks sjálfstæðismanna gera þá grein fyrir atkv. mínu og þeirra, sem eru andvígir 4. gr. frv., að þótt við séum mjög fylgjandi því að lækka ríkisútgjöld og draga úr ríkisumsvifum og höfum ekkert á móti því, nema síður sé, að veita frekari heimildir í þeim efnum tökum við fram að ríkisstj. hefur nú heimild í fjárlögum og í fjárfestingar- og lánsfjáráætlun, auk þeirrar heimildar sem farið er fram á í 4. gr., og hefur ekki gert þm. grein fyrir hvernig hún hyggst nýta þessar heimildir. Þrátt fyrir það mundum við fallast á þessa frekari heimild ríkisstjórninni til handa ef ekki væri í þeirri grein sagt að ríkisstj. sé heimilt þrátt fyrir ákvæði sérstakra laga sem gilda um einstaka útgjaldaliði að lækka ríkisútgjöld, þar með talin lögbundin framlög. Þessi ákvæði eru talin að fróðustu manna yfirsýn brjóta gegn stjórnarskrá landsins og því segjum við nei, að felldri þeirri brtt. sem fulltrúar okkar í fjh.- og viðskn. deildarinnar hafa flutt. Ég segi nei.