30.04.1981
Neðri deild: 86. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3883 í B-deild Alþingistíðinda. (3933)

306. mál, verðlagsaðhald

Eggert Haukdal:

Herra forseti. Ég þakka hv. 1. þm. Vestf. fyrir mikinn dugnað að flytja þessa brtt. Það hefur tekist samkomulag um þetta vörugjald. Við áttum frv. í þessari deild þrír þm., eins og kom fram hjá honum. Það tókst samkomulag um að lækka vörugjaldið úr 30% í 17% eins og frv. þetta ber með sér. Ég segi nei.