10.11.1980
Neðri deild: 13. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 568 í B-deild Alþingistíðinda. (397)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Haraldur Ólafsson dósent, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Guðmundur G. Þórarinsson,

12. þm. Reykv.

Haraldur Ólafsson hefur átt sæti á Alþingi eftir síðustu kosningar og rannsókn kjörbréfs hans því farið fram. Býð ég hann velkominn til starfa.

Tímabundið innflutningsgjald á sælgæti og kex, frv. (þskj. 37). — Frh. 1. umr.