04.05.1981
Neðri deild: 87. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3931 í B-deild Alþingistíðinda. (3973)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sinnt þingstörfum um sinn leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi, Sigurgeir Bóasson skrifstofustjóri, Bolungarvík, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Steingrímur Hermannsson,

2. þm. Vestf.“

Sigurgeir Bóasson hefur áður átt sæti á þessu þingi.

Býð ég hann velkominn til starfa.