05.05.1981
Sameinað þing: 79. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3976 í B-deild Alþingistíðinda. (4045)
295. mál, framkvæmd laga um fóstureyðingar
Fyrirspyrjandi (Karl Steinar Guðnason):
Herra forseti. Ég þakka þær athyglisverðu upplýsingar sem hér hafa komið fram. Það er ánægjulegt, eins og ráðh. gat um, að hlutfallslega er lægst tíðni fóstureyðinga hér á landi. En þessar tölur sýna að fóstureyðingum hefur fjölgað allverulega.
Þessar upplýsingar verða mönnum sjálfsagt umhugsunarefni og menn velta þá fyrir sér hvort ákvörðun um að taka tillit til félagslegra aðstæðna hafi verið svo brýn sem tölurnar sýna. Þessar tölur segja okkur það líka, að við megum vel við una miðað við Norðurlöndin hvað tíðni fóstureyðinga snertir. En ég vil endurtaka þakklæti fyrir greið svör.