12.05.1981
Neðri deild: 92. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4264 í B-deild Alþingistíðinda. (4371)

174. mál, fiskveiðilandhelgi Íslands

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Það orðaskak, sem uppi hefur verið haldið hér í hv. d. um málsmeðferð, er af allt öðrum toga spunnið en vegna þess að óréttlæti hafi verið sýnt í fundarstjórn og skulum við helst ekki rugla því tvennu saman.