15.05.1981
Sameinað þing: 83. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4409 í B-deild Alþingistíðinda. (4455)

Afbrigði vegna almennra stjórnmálaumræðna

Forseti (Jón Helgason):

Áður en gengið er til dagskrár vil ég leita eftir afbrigðum frá þingsköpum. Í fyrra voru veitt afbrigði frá þingsköpum um að stuðningsmenn ríkisstj. í Sjálfstfl. fengju 20 mín. ræðutíma í almennum stjórnmálaumræðum sem skiptist milli umræðna þannig, að 10–15 mín. yrðu í fyrri umferð og 5–10 mín. í síðari umferð. Ég leyfi mér að leggja til, að sami háttur verði hafður á nú í almennum stjórnmálaumræðum þriðjudaginn 19. þ. m., og vil biðja þá, sem samþykkja vilja þessi afbrigði, að gjöra svo vel að rétta upp hönd.