15.05.1981
Sameinað þing: 83. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4436 í B-deild Alþingistíðinda. (4482)
222. mál, ókeypis símaþjónusta opinberra stjórnsýslustofnana
Frsm. (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Allshn. hefur haft til meðferðar till. til þál. á þskj. 438 um ókeypis símaþjónustu („frínúmer“) opinberra stjórnsýslustofnana. Hún felur það í sér, að ríkisstj. láti þegar í stað gera þær breytingar á símakerfum helstu stjórnsýslustofnana ríkisins að þar verði notuð svokölluð „frínúmer“. Almenningi verði gert kleift að hringja í þessi „frínúmer“ hvaðan sem er af landinu án kostnaðar eða þannig að hver hringing telji aðeins eitt skref.
Nefndin fékk umsögn frá Neytendasamtökunum, auk þess sem póst- og símamálastjóri kom á fund nefndarinnar. Upplýst var á þeim fundi að um nokkra kosti væri að ræða til að koma við svonefndum „frínúmerakerfum“. Bæði hefðu þessir valkostir mjög mismikinn kostnað í för með sér, sem ekki var hægt að fá glögga vitneskju um, og auk þess gæfu þessir kostir nokkuð mismunandi möguleika á þjónustu og gæti einnig tekið bæði styttri og lengri tíma að koma slíku kerfi á eftir því hvaða kerfi væri valið. Nefndin taldi því að kanna bæri þessa valkosti til hlítar, hvaða áhrif hefðu og hvaða kostir teldust hagstæðastir, og leggja niðurstöður og tillögur fyrir Alþingi áður en endanleg ákvörðun yrði tekin. Nefndin hefur því gert eftirfarandi breytingu á tillgr., sem flutt er á þskj. 771 og hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að hún láti kanna hvort unnt sé að koma við svonefndum „frínúmerakerfum“ síma hjá þeim opinberu stofnunum, sem allur almenningur þarf að hafa mikil samskipti við.
Niðurstöður og tillögur verði lagðar fyrir næsta reglulegt Alþingi.“
Nefndin mælir með samþykkt till. með þessari brtt.