11.11.1980
Sameinað þing: 16. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 615 í B-deild Alþingistíðinda. (452)

347. mál, flugstöð á Keflavíkurflugvelli

Utanrrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Ég þóttist taka skýrt fram í svari mínu, hvar valdið í þessum efnum væri. Ég get gjarnan endurtekið það hér. (EKJ: Þökk fyrir það. ) Ákvörðunarvaldið er í höndum utanrrh. En þess er nú ekki þörf vegna þess að hér koma menn fram og lýsa því yfir, hver á fætur öðrum, að þeir hafi ekki vefengt það. (EKJ: Hæstv. fjmrh. gerði það.) Honum hefur kannske orðið mismæli.