15.05.1981
Neðri deild: 95. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4492 í B-deild Alþingistíðinda. (4538)
290. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Matthías Á. Mathiesen:
Herra forseti. Fulltrúar Sjálfstfl. í fjh.- og viðskn. eru þeirrar skoðunar, að 50% flýtifyrningarákvæði 44. gr. skattalaganna hefðu átt að standa óbreytt. Í frv. ríkisstj. er lagt til að því verði breytt í 40% og sérstök flýtifyrning, 4%, í staðinn heimiluð undir sérstökum kringumstæðum.
Í fjh.- og viðskn. náðist samkomulag um þá breytingu á 14. gr. frv., sem flutt er á þskj. 830, að hækka fjögur prósentin í sex. Sú er enn skoðun okkar sjálfstæðismanna, að 50% ákvæðið eigi að vera óbreytt. En til þess að forðast misskilning og þá um leið viðhalda þeirri samstöðu, sem varð í nefndinni, er 3. till. á þskj. 840 dregin til baka.