15.05.1981
Neðri deild: 96. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4504 í B-deild Alþingistíðinda. (4585)

182. mál, eftirlit með skipum

Garðar Sigurðsson:

Herra forseti. Þetta frv. er fylgifiskur þess frv., sem var verið að samþykkja áðan, og alveg óþarfi að hafa um það fleiri orð. Það verður auðvitað að samþykkja það vegna þess að það er eiginlega óaðskiljanlegur hluti af hinu. Það verður því miður að harma að frsm. fyrir málinu, sem afgreitt var hér áðan, skyldi ekki geta talað fyrir svo mjög merku máli þar sem er um verulega jákvæðar breytingar í dómskerfinu að ræða.