15.05.1981
Neðri deild: 96. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4515 í B-deild Alþingistíðinda. (4602)

275. mál, atvinnuleysistryggingar

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Með tilliti til þess, að ég met ofar öðru að frv. til í. um atvinnuleysistryggingar nái fram að ganga á þessu þingi, og með tilliti til þess að ekki er langt til næstu samninga þar sem úr deilunni um iðgjöld atvinnurekenda má þá skera, og þrátt fyrir að ég hefði kosið að frv. hefði staðið óbreytt, en er aðili að samkomulagi nm., þá segi ég nei.