16.05.1981
Efri deild: 104. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4529 í B-deild Alþingistíðinda. (4630)
123. mál, hollustuhættir
Frsm. (Davíð Aðalsteinsson):
Herra forseti. Hv. þm. Karl Steinar Guðnason kom inn á örfá atriði. Ég ætla ekki að fjalla um þau, en aðeins segja þetta af því að hann minntist á Náttúruverndarráð í þessu sambandi:
Eins og fram kom á nefndarfundi í morgun mun vera ágreiningur um þetta atriði. Þetta var rætt í heilbr.- og trn. Nd. Hv. þm. Karl Steinar Guðnason mun ekki, ef ég hef skilið hann rétt, flytja neinar brtt. Ég veit ekki annað en að það hafi verið niðurstaða í nefndinni hjá okkur í morgun að gera allt sem í okkar valdi stæði til þess að þetta mál færi hér í gegnum deildina og yrði að lögum.