16.05.1981
Neðri deild: 97. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4533 í B-deild Alþingistíðinda. (4653)

327. mál, umbætur á opinberum byggingum í þágu fatlaðra

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Hæstv. félmrh. hafði kynnt stjórnarandstæðingum þetta frv. sitt áður en hann flutti það og óskaði eftir því við okkur Alþfl.-menn, að við féllumst á að greiða gang frv. hér í þinginu þannig að það gæti orðið að lögum á þeim fáu starfsdögum sem eftir eru af Alþingi. Þingflokkur Alþfl. hefur tekið þessa málaleitan hæstv. félmrh. til umræðu og hefur fallist á að greiða gang þessa máls fyrir sitt leyti.