11.11.1980
Sameinað þing: 16. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 622 í B-deild Alþingistíðinda. (466)

352. mál, úrvinnsla skattframtala vegna ákvörðunar um búmark

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég ítreka að hæstv. fjmrh. sagði í ræðu sinni áðan að hann mundi ekki svara 2. lið þeirrar spurningar sem hér liggur fyrir þar sem sú spurning heyrði ekki undir ríkisskattstjóra. Ég sé satt að segja ekki að það snerti kjarna þessa máls, heldur hitt, hvort forseti Sþ. muni gera ráðstafanir til þess að fsp., sem borin er fram með þinglegum hætti, fái þinglega meðferð.