18.05.1981
Neðri deild: 100. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4571 í B-deild Alþingistíðinda. (4751)

323. mál, tollskrá

Flm. (Friðrik Sophusson):

Herra forseti. Á þskj. 789 höfum við leyft okkur, hv. þm. Árni Gunnarsson, Guðmundur G. Þórarinsson og ég, að gera tillögu til breyt. á lögum um tollskrá o. fl. sem eru nr. 120 frá 1976.

Tilgangur þessa frv. er að fella endanlega niður greiðslu aðflutningsgjalda, sem eru tollur, söluskattur, vörugjald og jöfnunargjald, af aðföngum (sem eru: hráefni, hjálparefni, rekstrarvörur, umbúðir, vélar, tæki, þar með talin flutningatæki til flutninga innan verksmiðjulóða, hlutar til véla og tækja, áhöld hvers konar og varahlutir) þeirra iðnfyrirtækja sem stunda framleiðslu til útflutnings eða eiga í beinni samkeppni við vörur og þjónustu, sem heimilt er að flytja til landsins, eða óbeinni samkeppni þegar heimill er innflutningur sem komið getur í stað innlendrar vöru eða þjónustu samkv. almennu mati notenda viðkomandi vöru.

Í 3. gr. laganna um tollskrá er fjallað um undanþágu og lækkunarheimildir. Við gerum tillögu um að 12. liður, sem þar er, breytist lítils háttar og verði fluttur í 2. gr., sem ber yfirskriftina tollfrjáls innflutningur, og verði þar 13. tölul.

Upplýsinga um þetta mál var aflað hjá Félagi ísl. iðnrekenda og Landssambandi iðnaðarmanna. Þess skal getið að frv. um þetta efni var lagt fram á 100. löggjafarþingi og voru þá flm. úr öllum stjórnmálaflokkum, auk mín þeir Árni Gunnarsson, Ingvar Gíslason og Kjartan Ólafsson, en því miður varð ekki aflað flm. nema úr þremur stjórnmálaflokkum þegar við nú endurflytjum þetta mál.

Á 100. löggjafarþinginu var málið tekið fyrir af fjh.- og viðskn. Nd. Alþingis, en formaður þeirrar n. í þann tíð var Lúðvík Jósepsson. Gefið var út nál. sem hljóðar þannig, með leyfi forseta:

„Nefndin hefur rætt frv. og fékk til fundar við sig ráðuneytisstjórann í fjmrn. og veitti hann ýmsar upplýsingar.

Tilgangur frv. er að fella endanlega niður greiðslu aðflutningsgjalda af aðföngum þeirra iðnfyrirtækja, sem stunda framleiðslu til útflutnings eða eiga í beinni samkeppni við vörur og þjónustu, sem heimilt er að flytja til landsins, eða óbeinni samkeppni, þegar heimill er innflutningur sem komið getur í stað innlendrar vöru eða þjónustu, eins og segir í grg. með frv.

Nefndin er sammála um að markmiði þessu þurfi að ná.“ — Ég endurtek: „Nefndin er sammála um að markmiði þessu þurfi að ná. Efni frv. er nánast samhljóða niðurstöðu samstarfsnefndar um iðnaðarmál, en sú n. hefur starfað á vegum iðnrn. Flm. frv. eru þm. úr öllum þingflokkum. Því sýnist víðtæk samstaða vera um efni frv.

Þar sem nefndinni er ljóst að ýmsir framkvæmdaörðugleikar muni verða við framkvæmd slíks ákvæðis í lögum, eins og frv.-greinin er orðuð, leggur nefndin til, að frv. verði vísað til ríkisstj., sem sjái um að frv. verði samið um þetta efni og flutt á næsta þingi þar sem með því verði best tryggð örugg framkvæmd málsins.“

Tilvitnun lýkur í nál. sem var undirritað af öllum nm. fjh.- og viðskn. á 100. löggjafarþinginu, en formaður þeirrar nefndar var þá Lúðvík Jósepsson, þáv. alþm.

Þess skal getið að aldrei kom frv. frá ríkisstj. Hins vegar fór fram endurskoðun á auglýsingu nr. 284/1978, um niðurfellingu og endurgreiðslu tolls og/eða sölugjalds af ýmsum aðföngum til samkeppnisiðnaðar, sem gerð var um s. l. áramót, en samt sem áður komust málin ekki í þau horf sem talist getur að sé eðlilegt. Vísa ég þar til umsagnar Félags ísl. iðnrekenda, en ekki síður til skýrslu sem samin var af samstarfsnefnd um iðnþróun sem starfaði á vegum núv. hæstv. iðnrh., en á bls. 64 í skýrslu hans, sem er fylgiskjal með þál. um iðnaðarstefnu, kemur rækilega fram að sú nefnd er sammála efni þessa frv. Gera verður ráð fyrir að hæstv. ráðh. sé það líka því að í 13. tölul. á bls. 2 í till. til þál. um iðnaðarstefnu segir svo, með leyfi forseta:

„Felld verði niður aðflutningsgjöld af aðföngum þess iðnaðar sem á í samkeppni við erlenda aðila.“

Í 13. tölul. í iðnaðarstefnu, þáltill. hæstv. iðnrh. og reyndar ríkisstj. allrar, er verið að vekja máls á þessu atriði vegna þess að það hefur ekki náðst fram m. a. vegna íhaldssemi fjmrn.

Það vekur athygli og frá því er skýrt á bls. 3 í grg. með þessu frv., að nú þegar lögð hafa verið fram stjfrv. um sjóefnavinnslu á Reykjanesi, steinullarverksmiðju og stálbræðslu er í öllum frv. gert ráð fyrir að þessi fyrirtæki fái niður felld aðflutnings- og sölugjöld af vélum, tækjum og varahlutum, og síðan er sagt að fjmrh. setji reglur um framkvæmd þessa ákvæðis. Þegar ríkið á í hlut er ekki hikað við að setja í lög slíka yfirlýsingu. Að vísu er þar um heimildagrein að ræða. Er mér kunnugt um að þegar til kastanna hefur komið við þau fyrirtæki, sem ríkið á í eða á að öllu, hefur reynst örðugt að semja við fjmrn. um þessi efni, en með frv. okkar er gert ráð fyrir að hér sé um fortakslaust ákvæði að ræða.

Verði þetta frv. samþykkt er það framlag Alþingis til þeirrar viðleitni að jafna starfsskilyrði atvinnuveganna. Á bls. 3 í grg. eru dæmi um núverandi skipan: annars vegar af flutningatækjum og hins vegar öðrum vörum sem iðnaðurinn íslenski notar. Hér er aðeins um örfá dæmi að ræða til að sýna hve misjafnlega þessar vörur eru tollaðar og hve mishá aðflutningsgjöldin eru.

Á bls. 4 er fjallað um þátt þessa frv. í tæknivæðingu og þá um leið lækkun vöruverðs á iðnaðarvörum. Loks er lítill kafli þar sem reynt er, að vísu með mjög óljósum hætti, að meta tekjutap ríkissjóðs, sem nánast er óhugsandi eins og mál eru nú. Þá eru fskj. birt með frv. Það eru bréf sem fóru á milli Félags ísl. iðnrekenda og fjmrn. vegna tveggja mála sem komu upp. Var annars vegar um að ræða Kassagerð Reykjavíkur og hins vegar Pólinn á Ísafirði. Þessi bréf sýna fyllilega hver er afstaða fjmrn. til niðurfellingar á aðflutningsgjöldum og hvernig tollskrárlögunum er beitt í framkvæmd.

Herra forseti. Hér er um endurflutt mál að ræða og þess vegna óþarfi að hafa mörg fleiri orð um þetta frv. Það kemur seint fram á þinginu og borin von að það verði samþykkt á yfirstandandi þingi, en með því að leggja frv. fram og koma því til nefndar teljum við flm. að við séum að ýta á hæstv. fjmrh. að taka undir með hæstv. iðnrh. og koma þessum málum í það horf sem eðlilegt getur talist.

Að lokinni þessari umr. legg ég til að málinu verði vísað til fjh.- og viðskn.