11.11.1980
Sameinað þing: 17. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 633 í B-deild Alþingistíðinda. (478)
61. mál, vegurinn undir Ólafsvíkurenni
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Ég get ekki látið hjá líða að segja örfá orð um þessa þáltill., sem ég að sjálfsögðu styð að öllu leyti.
Ég vil láta það koma fram að á s.l. hausti sendum við allir þm. Vesturl. sameiginlega erindi til Vegagerðarinnar eða samgrn. um að hafin yrði rannsókn á því, með hvaða hætti koma mætti í veg fyrir það mikla og hættulega grjóthrun sem hefur verið daglegur viðburður á þessum vegi allt frá því að hann var byggður. Eins höfum við óskað eftir að Vegagerðin setti upp að rannsókn þessari lokinni valkosti um lagfæringar í sambandi við veginn. Það var einnig á s.l. hausti eða sumri sem fjvn. fór í ferðalag um Vesturland til að athuga ýmsa þætti í sambandi við fjárveitingar til Vesturlands, og m.a. var þá með okkur verkfræðingur Vegagerðarinnar. Var sérstaklega rætt við hann um þetta mál í þeirri ferð, og þessi vegur var skoðaður sérstaklega.
Eftir viðtölum nýlega við vegamálastjóra er rannsókn þegar hafin og Vegagerðin mun leggja til við endurskoðun vegáætlunar árið 1981 að lagt verði fram sérstakt fjármagn einmitt í þessu skyni. Er það vel og í fullu samræmi við það sem hv. flm. hefur komið inn á og þm. Vesturl. óskuðu eftir.
Þetta er sem sagt mjög brýnt mál. Þessi vegur var mikið stórvirki á sínum tíma, en hins vegar hefur komið í ljós, að bergið þarna er með sérstökum hætti. Það er erfitt að koma í veg fyrir hrunið. En hvað sem öllu því líður verður það að gerast, og við hljótum að vera samstíga um að fundin verði leið til að gera þennan veg öruggan.