20.05.1981
Efri deild: 112. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4680 í B-deild Alþingistíðinda. (4841)

313. mál, steinullarverksmiðja

Frsm. (Davíð Aðalsteinsson):

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd iðnn. Ed. þakka fyrir góðar undirtektir hv. þm. við þá málsmeðferð sem iðnn. hefur hér lagt til. Að gefnu tilefni vil ég jafnframt flytja þakkir til hv. samnm. minna í iðnn. fyrir gott samstarf í umfjöllun þessa máls.