20.05.1981
Neðri deild: 101. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4706 í B-deild Alþingistíðinda. (4902)

261. mál, jafnrétti kvenna og karla

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Ég vek athygli á því, að náðst hefur fullt samkomulag í hv. félmn. um afgreiðslu þessa máls og í n. er hv. flm. frv. Ég veit ekki hversu lengi menn ætla að skemmta hver öðrum með ræðuhöldum í þessu máli héðan í frá, en ég hlýt mjög að stytta þessar umr. eða taka málið formálalaust út af dagskrá ef menn kjósa þá aðferð heldur.