20.05.1981
Neðri deild: 102. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4727 í B-deild Alþingistíðinda. (4952)

313. mál, steinullarverksmiðja

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Þó mikið liggi nú á held ég að það mundi flýta fyrir ef hæstv. ráðh. sýndi deildinni þá kurteisi að gera grein fyrir helstu breytingum sem þetta mál hefur hlotið í meðferð Ed. Ég held að við verðum að reyna að halda uppi sæmilegum mannasiðum hér í þinginu þó svo að áliðið sé nætur, og ég vil mælast til þess, að hæstv. iðnrh. reyni að gera einhverja grein fyrir málinu.