21.05.1981
Neðri deild: 103. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4830 í B-deild Alþingistíðinda. (5102)

333. mál, listskreytingasjóður ríkisins

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Ég vil í tilefni af þessu taka fram, að ekki er öll nótt úti enn og ég skal gjarnan athuga það, að þetta mál, sem hv. 9. þm. Reykv. minntist á, komi hér til umr. Ég mun leggja mig fram um það. Að vísu minnist ég þess ekki að hann hafi lagt sérstaka áherslu á þetta, en allt að einu, hann hefur rétt fyrir sér í því, að ekki á að ganga fram hjá málefnum, hvort heldur það er stjórn eða stjórnarandstaða, þótt menn megi að vísu ekki gleyma því hverjir ráða.