22.05.1981
Neðri deild: 106. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4888 í B-deild Alþingistíðinda. (5215)

320. mál, raforkuver

Garðar Sigurðsson:

Herra forseti. Ég var nokkuð lengi að koma mér hingað vegna þess að ég hafði í huga að skipta mér ekki af þessari atkvgr., kannske ekki síst vegna þess að ég veit ekkert hver á þetta land, hver er raunverulegur eignarréttaraðili að þessu afréttarlandi. En með tilvísun til grg. hv. þm. Alberts Guðmundssonar segi ég já.