22.05.1981
Neðri deild: 107. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4945 í B-deild Alþingistíðinda. (5278)

320. mál, raforkuver

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Austfirðingar hafa sýnt virðingarverða samstöðu í orku- og atvinnumálum. Þar ríkir ekki sú andstaða gegn framförum sem m. a. þm. og fámennur hópur manna standa fyrir á Norðurlandi. Ég kann að meta þessa samstöðu og eindrægni og vil styðja hana. Ég segi já.