25.05.1981
Efri deild: 123. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 5006 í B-deild Alþingistíðinda. (5353)

320. mál, raforkuver

Viðskrh. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Það er forsenda Fljótsdalsvirkjunar og þeirra orkuframkvæmda, sem hér er verið að heimila með þessum nýju lögum sem eru að verða að orkufrekur iðnaður sé á Austurlandi og víðar, enda farsótt að afla lána til slíkra framkvæmda nema sýnt sé fram á eðlilega arðsemi. Í stefnumörkun með frv. er gert ráð fyrir a. m. k. þreföldun orkufreks iðnaðar til aldamóta. Varðandi afstöðu mína vil ég taka fram eftirfarandi:

1. Í 2. gr. frv. er ríkisstj. gert að leggja fram í haust greinargerð um þá möguleika sem liggja fyrir um nýtingu orkunnar til orkufreks iðnaðar. Í því sambandi er í undirbúningi kísilmálmverksmiðja á Reyðarfirði.

2. Samkomulag er um að vegna fyrri áfanga Fljótsdalsvirkjunar verði gert ráð fyrir orkufrekum iðnaði á Austurlandi.

Með tilliti til þessa og í trausti þess, að ríkisstj. standi við þau áform er ég áður hef getið um, tel ég ekki ástæðu til að lögfesta þetta ákvæði og segi því nei.