25.05.1981
Neðri deild: 110. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 5015 í B-deild Alþingistíðinda. (5384)

Starfslok neðri deildar

Páll Pétursson:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd okkar Nd.-manna þakka hæstv. forseta fyrir góðar óskir í okkar garð. Ég vil enn fremur þakka honum fyrir röggsama og glaðværa fundarstjórn. Það er nokkur nýlunda hér í Nd., að forseti sé valinn úr hópi stjórnarandstæðinga, en ég vil sem stuðningsmaður ríkisstj. þakka honum alveg sérstaklega fyrir framúrskarandi réttláta stjórn á fundum deildarinnar í vetur og lipurð og lagni við þau stjórnarstörf. Ég vil enn fremur fyrir hönd okkar dm. þakka skrifstofustjóra og starfsmönnum Alþingis öllum vel unnin störf í okkar þágu. Ég vona að þetta sumar verði hæstv. forseta og fjölskyldu hans ánægjulegt og við hittum hann heilan og hressan hér á næsta hausti. Ég vil biðja hv. þm. að árétta ósk mína með því að rísa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]