25.05.1981
Sameinað þing: 89. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 5017 í B-deild Alþingistíðinda. (5391)

10. mál, samgöngur um Hvalfjörð

Frsm. (Guðmundur G. Þórarinsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. allshn. um till. til þál. um samgöngur um Hvalfjörð. Nál. kemur fram á þskj. 944.

Allshn. hefur fjallað um þessa till. og fengið umsagnir frá Siglingamálastofnun og vegamálastjóra auk þess sem n. hefur kynnt sér nál. um þetta mál frá 1972. Allshn. varð sammála um að leggja til að till. þessari verði vísað til ríkisstj.