25.05.1981
Sameinað þing: 89. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 5017 í B-deild Alþingistíðinda. (5393)

91. mál, nýting silungastofna

Frsm. (Egill Jónsson):

Herra forseti. Atvmn. Sþ. hefur fjallað um þetta mál og leitað umsagnar m. a. frá Búnaðarfélagi Íslands og Veiðimálastofnun og fékk jákvæð svör um framgang þessa máls. Nefndin gerði smávægilegar breytingar á tillgr., eins og fram kemur í afgreiðslu n., en þannig orðuð leggur n. samhljóða til að tillagan verði samþykkt.