25.05.1981
Sameinað þing: 90. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 5024 í B-deild Alþingistíðinda. (5399)

Þinglausnir

Forseti (Jón Helgason):

Ég þakka hv. 4. þm. Vestf., Þorv. Garðari Kristjánssyni, fyrir góðar óskir í minn garð og minnar fjölskyldu. Enn fremur þakka ég hv. alþm. fyrir að taka undir óskir hans með því að rísa úr sætum og endurtek árnaðaróskir mínar til alþingismanna.