20.11.1980
Sameinað þing: 22. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 804 í B-deild Alþingistíðinda. (684)

92. mál, efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vil gjarnan — ef ég má, með leyfi hæstv. forseta — spyrja hvort ekki séu nákvæmlega sömu ráðstafanir sem þarf að gera nú eins og þurfti að gera þegar myntbreytingin var ákveðin. Hver ráðlagði þessa myntbreytingu? Hvaða ráðstafanir í efnahagsmálum voru fyrirhugaðar samfara myntbreytingunni þegar hún var samþ.? Hafa forsendur fyrir myntbreytingunni breyst síðan hún var ákveðin? Ef svo er tel ég rétt að fresta myntbreytingunni.