21.10.1980
Sameinað þing: 5. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 76 í B-deild Alþingistíðinda. (70)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Jón Helgason):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 16. okt. 1980.

Svavar Gestsson, 2. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sinnt þingstörfum um sinn, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb., Guðrún Hallgrímsdóttir verkfræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fara fram í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Alexander Stefánsson,

forseti Nd.

Þá hefur mér borist annað bréf:

„Reykjavík, 20. okt. 1980.

Forseti sameinaðs Alþingis.

Vegna anna sé ég mér ekki fært að gegna þingstörfum um stundarsakir og óska eftir því, að Sigurður Magnússon rafvélavirki taki sæti á Alþingi í forföllum Svavars Gestssonar.

Virðingarfyllst,

Guðrún Hallgrímsdóttir.“

Þar sem Sigurður Magnússon hefur ekki átt setu á Alþingi á þessu kjörtímabili þarf að fara fram rannsókn á kjörbréfi hans, og vil ég biðja kjörbréfanefnd að taka kjörbréf Sigurðar Magnússonar til athugunar. Verður þá gefið fundarhlé í fimm mínútur. — [Fundarhlé.]