21.10.1980
Sameinað þing: 6. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 122 í B-deild Alþingistíðinda. (88)

337. mál, málefni Flugleiða

Sighvatur Björgvinsson:

Ég vildi aðeins láta það koma fram, að það er tvennt sem ég hef áhuga að fá að vita. Ef málinu er frestað núna, hvenær hyggst hæstv. forseti taka málið á dagskrá til umr. aftur? Í annað stað, við höfum ekkert á móti því, að umr. fari fram hér í kvöld ef ráðh. geta verið viðstaddir, fyrst of fremst hæstv. samgrh. og hæstv. fjmrh. En mér þykir algjört skilyrði að þessir tveir hæstv. ráðh. geti báðir verið viðstaddir svo að umr. geti haldið áfram.