02.12.1980
Sameinað þing: 27. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1025 í B-deild Alþingistíðinda. (928)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Jón Helgason):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„28. nóv. 1980. Guðmundur J. Guðmundsson, 7. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Reykjavík, Guðrún Hallgrímsdóttir verkfræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Sverrir Hermannsson, forseti Nd..“

Guðrún Hallgrímsdóttir hefur áður átt sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og hefur rannsókn á kjörbréfi hennar farið fram. Býð ég hana velkomna til starfa nú.